Fjármálastjóri KSÍ glataði milljónum á næturklúbbabrölti

Pálmi Jónsson, sagður fórnarlamb skipulagðrar glæpastarfsemi í Zurich þegar milljónir hurfu af kreditkorti hans og KSÍ.

Pálmi Jónsson, sagður fórnarlamb skipulagðrar glæpastarfsemi í Zurich þegar milljónir hurfu af kreditkorti hans og KSÍ. Mynd: KSÍ.

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 19:15

Höfundur: Sigurður Mikael Jónsson (mikael@dv.is)

Fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands sólundaði tæplega 8,2 milljónum króna, á núverandi gengi, á nokkrum klukkustundum á næturklúbbabrölti sínu í Zurich í Sviss árið 2005. Hann notaði meðal annars kreditkort KSÍ til að greiða fyrir hundrað þúsund króna kampavínsflöskur segir í svissneskum fjölmiðlum í dag. KSÍ segir að Pálmi Jónsson, fjármálastjóri KSÍ hafi orðið fórnarlamb skipulagðrar glæpastarfsemi þar ytra, en hann beri allan skaðann sjálfur af tapinu og hafi verið gert að endurgreiða þann hlut sem féll á kort KSÍ. Sambandið beri því ekki fjárhagslegan skaða af málinu.

Pálmi höfðaði mál gegn forsvarsmanni Moulin Rouge kabarettsins í Zurich þar sem hann taldi að okrað hefði verið á sér en hafði ekki árangur sem erfiði fyrir dómstól þar ytra í dag að því er greint er frá í svissneskum fjölmiðlum í dag. Bótakröfu hans var vísað frá.

KSÍ segir fjármálastjórann fórnarlambið í málinu
Í yfirlýsingu sem DV barst frá KSÍ eftir að blaðmaður hafði leitað upplýsinga um málið segir að Pálmi Jónsson, fjármálastjóri, hafi verið staddur í Zurich og orðið fyrir þeirri ógæfu að óprúttnir aðilar hafi tekið út af tveimur kreditkortum hans um 3,5 milljónir króna, á þáverandi gengi, án samþykkis.

„Starfsmaður Knattspyrnusambandsins var staddur á skemmtistaðnum og af kortunum var tekin umrædd upphæð án hans vitundar og þegar úttektin uppgötvaðist var málið samstundis kært og fylgt eftir hjá svissneskum yfirvöldum. Viðkomandi starfsmaður sótti málið, fjárhæðin var greidd af starfsmanninum strax til kreditkortafyrirtækisins og bar því Knattspyrnusamband Íslands aldrei neinn fjárhagslegan skaða af málinu. Hefur hann sótt málið sem persónulegt mál enda dagsljóst að viðkomandi er fórnarlamb skipulagðrar glæpastarfsemi og hefur þegar fengið bætur frá hluta þeirra aðila,“segir í yfirlýsingu KSÍ.

Hundrað þúsund króna kampavínsflöskur
Í einum svissneskum fjölmiðli í dag er þó eilítið önnur og skrautlegri saga sögð af málinu en þar segir að fjármálastjórinn hafi ásamt þremur ungum rússneskum dömum, sem nafngreindar eru sem Eva, Lora og Carmen í fréttinni, heimsótt fjölmarga næturklúbba í Zurich umrætt kvöld. Í morgunsárið hafi þau endað á staðnum Moulin Rouge þar sem fjármálstjórinn er sagður hafa slegið um sig og pantað kampavín í massavís. Hver flaska kostaði um 800 svissneska franka, eða tæplega hundrað þúsund krónur íslenskar. Daginn eftir hafi hann vaknað upp við vondan draum því himinhár reikningur upp á 67 þúsund svissneska franka var staðreynd. Bæði á hans eigin korti og KSÍ kortinu. Fjármálastjórinn hafi í kjölfarið kært forsvarsmann staðarins fyrir okur. Frá þessu greinir svissneska fréttasíðan 20 Minuten Online í dag.

Ekkert sannað varðandi okur
Var það niðurstaða dómsins að vísa bótakröfu Pálma frá því hann hafi kvittað fyrir alla reikninga umrætt kvöld og ábyrgðin væri því hans. Þóttu engar haldbærar sannanir fyrir því að okur hefði átt sér stað. Við rannsókn á málinu komst hins vegar upp um stórfellda svikamyllu og fjársvik á staðnum í Zurich sem rekstraraðili staðarins var dæmdur fyrir. Samkvæmt frétt 20 Minuten hjálpaði það Íslendingnum ekkert í sínum málarekstri.

Pálmi Jónsson starfar enn hjá KSÍ samkvæmt upplýsingum frá sambandinu.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Þriðjudagur 24. nóvember 2009 kl 23:56

Katrín fyrirgefur klámbúlluheimsókn

Mánudagur 23. nóvember 2009 kl 20:47

Strippstaður KSÍ: Niðurstaðan fordæmd

Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 19:47

KSÍ mun ekki aðhafast neitt – biður þjóðina afsökunar

Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 18:35

KSÍ: Kampavínsfundur fyrir luktum dyrum

Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 09:17

Strippstaður KSÍ: Fjórðungur stjórnar telur brottvikningu hugsanlega

Miðvikudagur 11. nóvember 2009 kl 12:09

Strippheimsókn ekki einsdæmi

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 19:48

Formaður KSÍ: „Hugsanlega sofnaði hann á staðnum“

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 13:32

Geiri býður KSÍ-menn velkomna á Goldfinger

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 11:30

Strippstaður KSÍ: Ráðherra krefst skýringa

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 10:56

Gillz: Allir alvöru karlmenn fara á strippbúllur

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 10:15

Strippstaður KSÍ: Eigandinn í Úkraínu að finna nýjar stelpur

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 09:00

Fjármálastjóri KSÍ: „Drekk ekki einu sinni kampavín“

Laugardagur 7. nóvember 2009 kl 15:49

Vilja að fjármálastjóri KSÍ víki

Föstudagur 6. nóvember 2009 kl 17:00

Þarna tapaði fjármálastjóri KSÍ milljónum