Ástralskir læknar eru undrandi á bata átján mánaða barns sem fæddist með sjaldgæfan heilasjúkdóm. Eftir að hafa eytt löngum stundum í að afla gagna um sjúkdóminn fundu læknar barnsins lyf, sem þýski plöntulíffræðingurinn Guenter Schwarz, hafði þróað.
Þar sem barnið, sem kallað er Baby Z, var í raun dauðvona ákváðu læknar að freista þess að nota lyfið og höfðu því samband við Scwarz. Hann brást vel við beiðninni og sendi læknateyminu lyfið með flugi en hafa ber í huga að það hafði aldrei áður verið prófað á mannfólki – aðeins tuttugu tilraunamúsum. Í dag er barnið hinsvegar laust við öll einkenni sjúkdómsins.
Sjúkdómurinn sem um ræðir er afar sjaldgæfur en mjög hættulegur. Hann lýsir sér þannig að líkaminn framleiðir banvænt efni sem veldur heilaskaða og að lokum dauða ef ekkert er að gert. Árlega deyja um hundrað börn í heiminum af völdum sjúkdómsins.
Það var þann sjötta júní í sumar sem læknar fengu leyfi frá yfirvöldum til að prófa lyfið. Þá var búið að halda Baby Z sofandi um nokkurra vikna skeið. Þremur dögum eftir að barnið fékk lyfið vaknaði það hinsvegar. Móðir barnsins var skiljanlega gríðarlega ánægð og segir hún að afar erfitt hafi verið að horfa upp á barnið sitt veslast upp og geta ekkert gert.
Nú er svo komið að öðru barni með sama sjúkdóm hefur verið bjargað í Þýskalandi með lyfinu. Guenther Schwarz og Alex Weldman, læknir barnsins, munu á næstunni halda til Bandaríkjanna þar sem þeir vonast til að finna samstarfsaðila til að framleiða og dreifa lyfinu.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu