ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

Bandarískur skólastrákur orðinn að andlegum trúarleiðtoga

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:30 › 5. nóvember 2009
Jigme er nú fluttur til Indlands og búinn að koma sér fyrir í munkaklaustri.

Jigme er nú fluttur til Indlands og búinn að koma sér fyrir í munkaklaustri. Mynd Ananova

Hinn ellefu ára gamli Jigme Wangchuk var fyrir aðeins nokkrum mánuðum ósköp venjulegur skólastrákur í stórborginni Boston. Nú er þessi ellefu ára piltur fluttur til Indlands þar sem hann tekst á við nýtt hlutverk; hann er nefnilega orðinn andlegur trúarleiðtogi.

Það var fyrir tveimur árum sem foreldrar hans, sem eru fæddir í Indlandi, tóku eftir því að sonur þeirra var ekki eins og önnur börn. Ástæðan er sú að Jigme talaði mikið um reynslu sína úr fyrra lífi. Í fyrstu töldu foreldrarnir þó að um hreina ævintýramennsku væri að ræða en það átti þó allt eftir að breytast þegar hann heimsótti Indland.

Jigme fór með fjölskyldu sinni til borgarinnar Darjeeling fyrir nokkrum mánuðum og þá segja foreldrar hans að hann hafi fallið í trans þegar hann heimsótti munkaklaustur í Mysore. Munkarnir í klaustrinu voru fullvissir um að þarna væri kominn búddaleiðtoginn Galwa Lorepa, endurholdgaður, sem dó árið 1250.

Jigme mun að minnsta kosti eyða næstu tíu árum ævi sinnar í klaustrinu þar sem hann mun gerast munkur og andlegur leiðtogi í klaustrinu. Þá mun hann aðeins geta haft samband við sína gömlu bekkjarfélaga í Boston í gegnum tölvupóst. Piltinum stóð að vísu alltaf til boða að fara aftur til Boston en svar piltsins var einfaldlega það að hann þyrfti að uppfylla skyldur sínar gagnvart munkunum í klaustrinu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.