ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.6° 6m/s SSW

Apple í sókn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
11:45 › 5. nóvember 2009

Þrátt fyrir yfirstandandi heimskreppu kom Apple-fyrirtækið markaðsspekúlöntum í opna skjöldu í vikunni þegar tilkynnt var methagnað fyrirtækisins síðustu þrjá mánuðina.

Hagnaðurinn nam 1,67 milljörðum Bandaríkjadala og er 46% aukning frá sama tímabili í fyrra. Sem dæmi um sölutölur seldi fyrirtækið 7,4 milljónir iPhone-síma og 3.05 milljónir Apple-tölva á tímabilinu. Eina vara fyrirtækisins sem hefur dalað í sölu er iPod-spilarinn en þar hefur salan dregist saman um 8% á ársgrundvelli. Hagnað Apple má að mestu leyti skýra með vinsældum iPhone en hann er nú seldur í um 40 löndum. Auglýsingaherferð Apple sem beinist að ungu fólki á leið í framhaldsnám og þarf að velta fyrir sér tölvukaupum hefur einnig skilað ótrúlegum árangri.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.