Foreldrar nýfæddra barna þurfa ekki lengur að klóra sér í hausnum yfir því hvað í ósköpunum ungabörn þeirra vilja þegar þau gráta. Spænskt fyrirtæki hefur sett á markað hugbúnað fyrir iPhone-símana sem framleiðandinn segir að svari þeirri spurningu á tíu sekúndum.
Gríðarleg eftirspurn hefur verið eftir þessum hugbúnaði eftir að greint var frá honum í bandarísku sjónvarpi í vikunni.
Framleiðandinn, Biloop Technologic, segir hugbúnaðinn geta greint á milli fimm tegunda af barnsgrátri.
Grátþýðandinn, eða Cry Translator, á að geta greint hvort barnið sé þreytt, svangt, pirrað, stressað eða hvort því leiðist út frá grátkastinu.
Höfundar forritsins segja þetta alþjóðlegan grátur sem hafinn sé yfir menningu og tungumál. Eina sem foreldrarnir þurfa að gera er að halda iPhone-símanum sínum í námunda við barnið í tíu sekúndur og vandamálið á að vera leyst.
Framleiðandinn lofar 96 prósenta öryggi en um leið og gráturinn hefur verið greindur birtast tillögur að því hvað foreldrið geti gert til að róa barnið.
Hugbúnaðurinn greinir þó ekki hvort barnið sé hreinlega veikt, og þá virkar nú oft eðlisávísun móður eða föður betur.
Hugbúnaðurinn fæst í Bretlandi, Bandaríkjunum og Spáni eins og er og kostar um tíu pund.
Rannsókn var gerð á spítala í Spáni þar sem hugbúnaðurinn var prófaður á 104 börnum. Þegar tillögum forritsins var fylgt tókst í 96 prósentum tilvika að fá barnið til að hætta að gráta.





Biblían bjargaði lífi hennar: Las fyrir árásarmanninn
Týndir þú skartgripum á höfuðborgarsvæðinu?
Sjáðu allar Super Bowl auglýsingarnar
„Fyrirgefðu, bless“
Breivik krafðist þess að verða látinn laus