Hin sjö mánaða gamla Shannon Dedrick, sem saknað hafði verið í fimm daga, fannst á lífi í kassa undir rúminu hjá barnfóstru sinni í dag. Yfirvöld segja að barnfóstran, eiginmaður hennar og móðir stúlkunnar verði öll ákærð í málinu.
Hin fimmtuga Susan Elizabeth Baker frá Flórída í Bandaríkjunum er þegar grunuð ásamt eiginmanni sínum James í hvarfi á þriggja ára gömlum stjúpsyni sínum árið 1987. Shannon litla fannst í kassa undir rúmi hennar og hafði ýmsum munum verið komið fyrir í kringum hana í þeirri von um að fela stúlkuna.
Lögregluyfirvöld í Flórída boðuðu til blaðamannafundar í dag þar sem sagt var frá því að stúlkan hefði fundist. Kraftaverki líkast þykir að hún hafi fundist á lífi. Lögreglan vildi ekki gefa upp hvernig talið væri að móðir stúlkunnar tengdist hvarfi hennar en hún er grunuð í málinu. Faðir Shannon litlu er skyldur barnfóstrunni en ekki er talið að hann hafi átt þátt í hinu dularfulla hvarfi.
Yfirvöld höfðu oft þurft að hafa afskipti af foreldrum Shannon undanfarna mánuði þar sem óttast var um velferð hennar. Voru foreldrarnir sagðir hasshausar og heimilið þótti óþrifalegt. Niðurstaðan var hins vegar sú að svo virtist sem vel væri hugsað um stúlkuna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu