ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Mansalsmálið: Sex menn áfram í gæsluvarðhaldi

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:17 › 4. nóvember 2009
Fimm Litháar og einn Íslendingur skulu sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi.

Fimm Litháar og einn Íslendingur skulu sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum krafðist þess í dag fyrir Héraðsdómi Reykjaness að 6 karlmenn, 5 Litháar og 1 Íslendingur, sem setið hafa í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á ætluðu mansali og skipulagðri glæpastarfsemi yrðu úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í allt að tvær vikur.

Héraðsdómur féllst á gæsluvarðhaldskröfurnar en markaði gæsluvarðhaldinu skemmri tíma hjá öllum mönnunum eða allt til miðvikudagsins 11. nóvember næstkomandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.