ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.2° 5m/s ESE

Ljósmyndara DV vísað öfugum út af Biskupsstofu

13:17 › 4. nóvember 2009
Starfsfólk biskups rak ljósmyndara DV á dyr.

Starfsfólk biskups rak ljósmyndara DV á dyr.

Starfsfólk Biskupsstofu brást illa við komu ljósmyndara DV sem ætlaði að mynda komu séra Gunnars Björnssonar til fundar við biskup. Er ljósmyndari kynnti sig og erindið var honum mætt með ákveðnum hætti og vísað samstundis á dyr.

Til stóð að séra Gunnari myndi funda í dag með Karli Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands, og ná lendingu í deilur þeirra. Hins vegar varð ekkert af fundinum því samkvæmt heimildum DV ákvað Gunnar að mæta ekki til fundarins. Þær upplýsingar fengust frá Biskupsstofu að fundinum hafi verið frestað um óákveðinn tíma.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.