Fangelsismálayfirvöld Kaliforníu virðast hafa brugðist Jaycee Lee Dugard sem numin var af brott fyrir átján árum síðan þegar hún var tólf ára gömul. Yfirvöldum láðist að fylgja eftir hinum dæmda nauðgara Phillip Garrido og misstu þar af leiðandi af gullnu tækifæri til að uppgötva að hann var með Dugard í haldi.
Í skýrslunni segir að á einum tímapunkti hafi yfirvöld meira að segja vitað að tólf ára stúlka byggi á Garrido, en þau aðhöfðust ekkert.
Rannsóknarnefnd í Kaliforníu hefur birt stiklur úr skýrslunni á vefsíðu sinni en rannsókn á málinu fór á fullt eftir að Dugard fannst. Hún hafði búið í skúr fyrir aftan heimili Garrido-hjónanna. Þá hafði henni verið nauðgað af Phillip Garrido í gegnum tíðina og hafði hún eignast tvö börn. Garrido var dæmdur kynferðisbrotamaður og segir í skýrslunni að kerfið hafi brugðist í eftirliti með honum. Má því ætla að Dugard hefði átt að finnast fyrir mörgum árum.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu