Rannsóknarnefnd Alþingis rannsakar starfsemi kærunefndar Fjármálaeftirlitsins á árunum 1998 til 2006. Formaður rannsóknarnefndarinnar telur nefndina hafa verið vandamál. Fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, Jónas Fr. Jónsson, telur nefndina hafa haft alvarleg áhrif á fjármálaeftirlit en nefndin ógilti á milli 70 og 80 prósent af úrskurðum stofnunarinnnar á tímabilinu.
Kærunefnd sem tók fyrir úrskurði Fjármálaeftirlitsins á árunum 1998 til 2006 var hluti af vandamálunum við íslenska eftirlitskerfið með fjármálamarkaðnum. Þetta segir Páll Hreinsson, formaður rannsóknarnefndar Alþingis, aðspurður hvort kærunefndin sé til skoðunar hjá rannsóknarnefndinni. Páll staðfestir að svo sé. „Hún kemur inn í tölfræðilega hlutann og hvernig starfsemi hennar var í tengslum við Fjármálaeftirlitið. Hún er hluti af lýsingu á eftirlitskerfinu og vandamálum þess,“ segir Páll um kærunefndina.
Nefndin var skipuð þremur mönnum, síðast þeim Erni Höskuldssyni, Garðari Valdimarssyni og Kristjáni Jóhannssyni. Hlutverk nefndarinnar var að staðfesta eða ógilda þá úrskurði um brot á fjármálamarkaði sem Fjármálaeftirlitið sendi frá sér.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
