ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Aðeins Nóatúnsbörnin fengu barnalánin

13:07 › 4. nóvember 2009
  • Jón Þorsteinn Jónsson

    Jón Þorsteinn Jónsson

Engin önnur börn en þau úr Nóatúnsfjölskyldunni virðast hafa fengið lán frá Glitni í desember árið 2007 til að fjármagna stofnfjárkaup sín í sparisjóðnum Byr. Fjöldinn allur af börnum átti stofnfjárhluti í Byr, enda hefur það tíðkast hér á landi í gegnum árin að foreldrar og aðstandendur barna gefi þeim stofnfjárhluti í skírnargjöf og við önnur slík tækifæri, og áttu þar af leiðandi rétt á að taka þátt í stofnfjáraukningunni.

Heimildir DV herma hins vegar að einungis foreldrar sjö barna úr Nóatúnsfjölskyldunni hafi nýtt sér þann möguleika að taka lán hjá Glitni fyrir börn sín. Þar á meðal eru þrjú börn Jóns Þorsteins Jónssonar, stjórnarformanns í Byr, og tvö af börnum bróður hans, Einars Arnar Jónssonar, sem og börn tveggja systkina þeirra. Þessi staðreynd setur barnalánsmálið í Glitni í nokkuð nýtt samhengi.

Fjárfestingafélag systkinanna, Saxhóll, átti um 7,5 prósenta hlut í Byr og félag sem var að hluta til í eigu þess, Saxbygg, keypti 5 prósenta hlut í Glitni í apríl 2007 fyrir um 20 milljarða króna. Systkinin voru því stórir hluthafar í báðum fjármálafyrirtækjum og má nánast fullyrða að Jón Þorsteinn hafi verið maðurinn á bak við þá ákvörðun að leitað var til Glitnis til að fjármagna stofnfjáraukninguna.

Sú staðreynd að sjö af börnum Nóatúnsfjölskyldunnar fengu lán frá Glitni en engin önnur börn stofnfjáreigenda, svo vitað sé, vekur upp spurningar um hver ástæðan fyrir því sé. Enn sem komið er hefur enginn úr fjölskyldunni tjáð sig um það.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?