ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Afskrifaði milljarða af skuld Magnúsar bróður

08:00 › 30. nóvember 2009
Birkir fékk ekki þá þrjá milljarða frá Magnúsi bróður sínum sem samið hafði verið um.

Birkir fékk ekki þá þrjá milljarða frá Magnúsi bróður sínum sem samið hafði verið um.

Birkir Kristinsson, fjárfestir og starfsmaður eignastýringar Íslandsbanka, þurfti að afskrifa þriggja milljarða króna kröfu sem hann átti á hendur einkahlutafélagi í eigu hálfbróður síns, Magnúsar Kristinssonar, fjárfestis og útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. Afskriftin á skuldinni var tilkomin vegna þess að Magnús gat ekki greitt Birki eftirstöðvar sjö milljarða króna kaupverðs fyrir hlut Birkis í fjárfestingafélaginu Gnúpi.

Bræðurnir áttu saman 28,5 prósenta hlut í félaginu í gegnum eignarhaldsfélögin MK 44 ehf. og MK 44 II ehf. en um sumarið 2007 keypti Magnús hlutina í Gnúpi út úr félögunum. Birkir og Magnús gerðu með sér nauðasamning í apríl í fyrra þar sem þetta kemur fram samkvæmt heimildum DV. Með samningnum var félagi Magnúsar forðað frá gjaldþroti.

Þrátt fyrir að Birkir hafi þurft að afskrifa þá 3 milljarða króna sem hann átti útistandandi hjá bróður sínum fékk hann hina fjóra milljarðana greidda frá félagi Magnúsar. Suðurey, sem stofnað var gagngert til að halda utan um fjárfestingu Magnúsar í Gnúpi, komst hins vegar í mikil vandræði með falli Gnúps. Suðurey skilaði tæplega 20 milljarða króna tapi á árinu 2007 vegna falls Gnúps og því gat félagið ekki greitt eignarhaldsfélagi Birkis milljarðana þrjá.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?