Jón Þorsteinn Jónsson, fyrverandi stjórnarformaður í sparisjóðnum Byr og barnalánspabbi, sagði í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í apríl að líklega hefði ekki verið heppilegt hjá íslenskum fjármálafyrirtækjum að lána svo mikið fé eingöngu gegn veðum í þeim hlutabréfum sem fjárfest var í með láninu.
Yfirlýsinguna sendi hann frá sér eftir miklar umræður í fjölmiðlum um Byr, meðal annars um mál félagsins Exeter Holding sem nú hefur verið sent til sérstaks saksóknara. Þrjú af ólögráða börnum Jóns Þorsteins fengu kúlulán frá Glitni til að taka þátt í stofnfjáraukningu Byrs árið 2007, líkt og DV hefur greint frá, og var veðið fyrir lánunum eingöngu í stofnfjárbréfunum.
Jón Þorsteinn virðist hins vegar ekki telja að slíkar lánveitingar séu heppilegar eftir á að hyggja, í ljósi þess að að íslenska fjármálakerfið hrundi. Honum virðist því ekki finnast að neitt sé athugavert við slíkar lánveitingar í sjálfu sér. Í yfirlýsingunni sagði Jón Þorsteinn:
„Segja má að eftir að á að hyggja hefði verið heppilegra að Byr sparisjóður hefði leitað frekari trygginga vegna lánveitinga sparisjóðsins til áðurnefnds Exeter Holding. Það var því miður lenska í bankakerfinu á síðustu árum að veitt væru lán, eingöngu með veðum í þeim bréfum sem fjárfest var í. Ljóst er að öll fjármálafyrirtæki þurfa að draga af því nauðsynlegan lærdóm. Ég, sem fyrrverandi stjórnarformaður Byrs sparisjóðs, tek að sjálfsögðu á mig minn hluta ábyrgðarinnar á því sem kann að hafa mátt betur fara. Það er jú alltaf auðvelt að vera vitur eftir á, eins og við þekkjum flest.“
Jón Þorsteinn og systkini hans í Nóatúnsfjölskyldunni voru stórir hluthafar í Byr í gegnum eignarhaldsfélag sitt Saxhól og voru sömuleiðis stórir hluthafar í Íslandsbanka í gegnum félagið Saxbygg, ásamt Gunnari og Gylfa í verktakafyrirtækinu Bygg. Langflest, ef ekki öll barnalánin frá Glitni, fóru til barna í Nóatúnsfjölskyldunni.






Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir