ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

Barnalánspabbi: „Bankinn var ekkert að benda okkur á þetta“

07:17 › 3. nóvember 2009
  • Segist ekki hafa vitað að ekki mætti taka lán fyrir ófjárráða einstaklinga.

    Segist ekki hafa vitað að ekki mætti taka lán fyrir ófjárráða einstaklinga.

Einar Örn Jónsson, faðir tveggja barna sem fengu kúlulán hjá Glitni til að kaupa stofnfé í Byr árið 2007, segist ekki hafa vitað að hugsanlega væri það lögbrot að skuldsetja börnin sín. Börn Einars voru 8 og 16 ára þegar lánin voru veit. Hann segir að hugsanlega hefði hann sleppt því að taka lán í nafni barna sinna ef einhver hefði sagt honum að það mætti ekki. Barnalán Glitnis hafa vakið mikla athygli á síðustu dögum

Aðspurður hvort hann hafi ekki fengið bréf frá sýslumanninum í Reykjavík þar sem hann lét foreldrana vita að þeir mættu ekki skuldsetja börn sín á þennan hátt til að kaupa hlutabréf segir Einar Örn að bréfið frá sýslumanni hafi borist í október 2008, tíu mánuðum eftir stofnfjáraukninguna. „Þá var þetta orðinn orðinn hlutur... Maður fer niður í banka og býst þá við að þeir segi: Þetta gengur ekki. Þú verður að fá samþykki hjá sýslumanni fyrir þessu. Þá kannski hefði ég stoppað. Bankinn var ekkert að benda okkur á þetta... Ég hefði viljað fá ábendingu um að þetta mætti ekki,“ segir Einar Örn og bætir því við að fólk hafi verið með falskar væntingar um að þetta væri í lagi þar sem bankinn hefði gefið grænt ljós á lánveitingarnar.

Einar Örn fer því sömu leið og Sigrún Kristinsdóttir, móðir þriggja barna sem fengu lán til stofnfjárbréfakaupa, að telja Glitni fyrst og fremst ábyrgan fyrir lánveitingunum til barnanna en lítur ekki svo mjög í eigin barm.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.