ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Barnalán Glitnis: „Þetta er bara mitt mál“

14:00 › 3. nóvember 2009
Mikill styr stendur þessa dagana um stofnfjáraukninguna í Byr árið 2007.

Mikill styr stendur þessa dagana um stofnfjáraukninguna í Byr árið 2007.

Stór hluti þeirra lána sem fóru frá Glitni til ólögráða einstaklinga fyrir stofnfjáraukninguna í Byr árið 2007 runnu til barna í Nóatúnsfjölskyldunni. Börn Einars Arnar Jónssonar, Jóns Þorsteins Jónssonar, Rutar Jónsdóttir og Júlíusar Þórs Jónssonar. Einar Örn er sá eini þeirra systkina sem hefur opnað sig um lánveitingarnar. Það gerði hann í samtali við DV í gær, mánudag. Erfiðara hefur hins vegar verið að fá systkini hans til að opna sig.

Júlíus Þór vildi ekki ræða um lánveitingarnar þegar DV hafði samband við hann. „Ég vil ekkert tjá mig um þessi mál,“ sagði Júlíus aðspurður af hverju systkinin hefðu tekið þessar ákvarðanir fyrir hönd barnanna sinna. „Þetta er bara mitt mál. Mín hlið á þessu er engin að svo stöddu,“ sagði Júlíus.

Systir þeirra bræðra, Rut Jónsdóttir, vildi heldur ekki ræða um lánveitingarnar til barnanna þegar DV hafði samband við hana. Barn hennar, fætt árið 1990, er skráður stofnfjáreigandi í Byr upp á rúmlega 14 milljónir króna og var ekki orðið lög- og fjárráða þegar lánið var veitt þó það sé orðið það í dag. Rut er sömuleiðis stofnfjáreigandi í Byr, með um 18 milljónir króna, sem og eiginmaður hennar með rúmar 14. „Af hverju tóku fleiri hundruð stofnfjáreigendur ákvörðun að taka þessi lán?... Það eru allir í sömu sporum,“ segir Rut aðspurð af hverju hún hafi tekið ákvörðun um að fjárfesta í stofnfjárbréfum fyrir barn sitt.

Á næstunni má búast má við miklum málaferlum út af lánveitingum Glitnis til stofnfjáreigenda í Byr. Jafnvel þó að börnin sem fengu lán hjá Glitni fyrir tilstuðlan foreldra sinna séu sloppin fyrir horn eru margir stofnfjáreigendur sem eru skuldsettir út af stofnfjáraukningunni og er ólíklegt annað en að Íslandsbanki muni ætla sér að ganga að þeim til að fá upp í kröfur sínar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?