Börnin tíu sem fengu lán frá Glitni til að kaupa stofnfjárbréf í sparisjóðnum Byr árið 2007 fengu arðgreiðslur af stofnfjárbréfum sínum á árinu 2008, samkvæmt heimildum DV. Arðgreiðslurnar fóru í að greiða niður hluta lánanna við Glitni. Þegar lánin voru tekin var það hluti samkomulagsins að arðgreiðslurnar á árunum 2008 og 2009 færu í að greiða lánin niður. Enginn arður var greiddur á árinu 2009 vegna íslenska efnahagshrunsins og slæmrar stöðu sparisjóðsins.
Líkt og komið hefur fram máttu börnin, sem voru ólögráða þegar þau fengu lánin, ekki fá lánin til að kaupa stofnfjárbréfin því ekki er heimilt, lögum samkvæmt, að lána ólögráða einstaklingi fjármuni. Þess vegna má segja að börnin hafi fengið arðgreiðslur af stofnfjárbréfaeign sem var ólögmæt þar sem lánin sem notuð voru til að fjármagna stofnfjárbréfakaupin voru ólögmæt. Komið hefur fram að Íslandsbanki hyggist ekki innheimta eftirstöðvar lánanna á þeim forsendum að lánin hafi ekki verið lögmæt og þar af leiðandi hlýtur sú spurning að vakna hvort réttlátt sé að arðgreiðslurnar til barnanna árið 2008 verði ekki greiddar til baka.
Samkvæmt heimildum DV er afar líklegt að Íslandsbanki komist að þeirri niðurstöðu að greiða þurfi arðgreiðslurnar af stofnfjárbréfaeign barnanna frá árinu 2008 aftur til Byr. Þannig verði í reynd búið svo um hnútana að allt varðandi þessi barnalán frá Glitni verði látið ganga til baka: Börnin þurfi ekki að greiða lánin og arðgreiðslurnar þeirra gangi til baka inn í Byr. Þessi ákvörðun hefur ekki verið tekin inni í Íslandsbanka en hún þykir líkleg lending í málinu.
Íslandsbanki hefur, að beiðni DV, sent blaðinu eftirfarandi tilkynningu um barnalánin og hvernig bankinn hyggst afgreiða spurninguna um arðgreiðslurnar: „Lögræðislög kveða á um að ógildum löggerningi af þessu tagi skuli snúið tilbaka eins og samningur hafi aldrei verið gerður. Samningsaðilar eiga að skila því sem þeir hafa móttekið. Þetta þýðir að lántakendur skila Byr stofnfjárhlutunum. Byr mun á móti skila þeim kaupverði bréfanna og foreldrar hinna ólögráða einstaklinga eiga að skila láninu tilbaka til Glitnis eða í þessu tilviki Íslandsbanka. Þær arðgreiðslur sem þegar hafa verið inntar af hendi og hafa runnið til greiðslu lánanna koma til frádráttar.“
Gert er ráð fyrir að Íslandsbanki muni taka að sér að skila stofnfjárhlutunum fyrir hönd lántakenda og jafnframt að hinir ólögráða einstaklingar framselji bankanum kröfu sína um kaupverð á hendur Byr og verða þá lausir allra mála og allir málsaðilar þannig settir eins og gerningurinn hafi ekki átt sér stað.
Þetta mun þó ekki hafa mikil áhrif á þau börn sem fengu, en flest þeirra koma úr Nóatúnsfjölskyldunni svokölluðu, þar sem arðgreiðslurnar runnu beint til Glitnis.



















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 

Til hamingju Landsbanki að finna breiðu bökin
Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu
Ríkisstyrkt Bændasamtök að sýsla í áhætturekstri?
Samherjamenn: Seðlabankinn kann ekki að reikna
Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum
