„Þetta minnir mig á gamla góða tíma þegar Jón Baldvin var í sínu besta formi,“ sagði Styrmir Gunnarsson í Silfri Egils í Ríkissjónvarpinu í dag eftir að Jón Baldvin Hannibalsson hélt þrumuræðu yfir honum um sök Sjálfstæðisflokksins á Icesave-reikningunum. Jón Baldvin og Styrmir eru félagar frá fórnu fari þótt að þeir séu á sitthvorum pólnum í stjórnmálaskoðunum. Ræddu þeir um bók Styrmis Gunnarssonar „Umsátrið“ sem fjallar um aðdraganda og eftirmála efnahagshrunsins á Íslandi.
Styrmir sagðist vera þeirrar skoðunar að Íslendingar ættu ekki að bera ábyrgð á Icesave-reikningunum vegna laga um alþjóðaviðskipti sem Íslendingar heyra undir vegna alþjóðlegra samninga. Jón Baldvin sagði það brýnt að Íslendingar gengust undir Icesave-ábyrgðinni vegna loforða ríkisstjórnar Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að innistæður sparifjáreigenda væru tryggðar.
Styrmir og Jón Baldvin tókust einnig á um aðildarviðræður Íslendinga að Evrópusambandinu og þráttuðu þeir lengi um að Íslendingar yrðu að afsala sér réttindum að auðlindum sem tilheyra þjóðinni. Styrmir sagði Íslendinga aldrei geta fengið undanþágu að því að Íslendingar gætu einir haft aðgang að fiskveiðilögsögu Íslendinga en Jón Baldvin sagði það vel hægt að Íslendingar gætu fengið aðild að Evrópusambandinu með undanþágu um að þeir hefðu einir nýtingarrétt að fiskveiðilögsögunni.
Jón Baldvin og Styrmir voru sammála um að Ísland væri í ógöngum vegna klíkusamfélags í stjórnkerfinu. Ræddu þeir það í samhengi við seinkun á birtingu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á bankahruninu í fyrra. Sagði Jón Baldvin það vera einstaklega óheppilegt að nefndin hafi ekki birt bráðabirgðaskýrslu í kjölfar þess að ljóst var að seinkun yrði á skýrslunni. Hann sagði Íslendinga þurf að vita sannleikann um efnahagshrunið sem fyrst svo að sátt náist í samfélagið.






Það eru stórtíðindi að Samstaða, flokkur Lilju Mósesdóttur, skuli mælast með allt að fjórðungsfylgi í skoðanakönnunum. Þessi niðurstaða felur í sér skýr skilaboð um það að kjósendur vilja nýjar áherslur ... 

„Ég bara réð ekki við þetta“
Létu vita um háa lekatíðni PIP púða hérlendis
Jónas H. Haralz er látinn
Ögmundur: „Gotcha“
Jón Ásgeir verður á Beinni línu á eftir