Vinir tókust á í Silfri Egils
„Þetta minnir mig á gamla góða tíma þegar Jón Baldvin var í sínu besta formi,“ sagði Styrmir Gunnarsson í Silfri Egils í Ríkissjónvarpinu í dag eftir að Jón Baldvin Hannibalsson hélt þrumuræðu yfir honum um sök Sjálfstæðisflokksins á Icesave-reikningunum. Jón Baldvin og Styrmir eru félagar frá fórnu fari þótt að þeir séu á sitthvorum pólnum í stjórnmálaskoðunum. Ræddu þeir um bók Styrmis Gunnarssonar „Umsátrið“ sem fjallar um aðdraganda og eftirmála efnahagshrunsins á Íslandi.
Styrmir sagðist vera þeirrar skoðunar að Íslendingar ættu ekki að bera ábyrgð á Icesave-reikningunum vegna laga um alþjóðaviðskipti sem Íslendingar heyra undir vegna alþjóðlegra samninga. Jón Baldvin sagði það brýnt að Íslendingar gengust undir Icesave-ábyrgðinni vegna loforða ríkisstjórnar Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um að innistæður sparifjáreigenda væru tryggðar.
Styrmir og Jón Baldvin tókust einnig á um aðildarviðræður Íslendinga að Evrópusambandinu og þráttuðu þeir lengi um að Íslendingar yrðu að afsala sér réttindum að auðlindum sem tilheyra þjóðinni. Styrmir sagði Íslendinga aldrei geta fengið undanþágu að því að Íslendingar gætu einir haft aðgang að fiskveiðilögsögu Íslendinga en Jón Baldvin sagði það vel hægt að Íslendingar gætu fengið aðild að Evrópusambandinu með undanþágu um að þeir hefðu einir nýtingarrétt að fiskveiðilögsögunni.
Jón Baldvin og Styrmir voru sammála um að Ísland væri í ógöngum vegna klíkusamfélags í stjórnkerfinu. Ræddu þeir það í samhengi við seinkun á birtingu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis á bankahruninu í fyrra. Sagði Jón Baldvin það vera einstaklega óheppilegt að nefndin hafi ekki birt bráðabirgðaskýrslu í kjölfar þess að ljóst var að seinkun yrði á skýrslunni. Hann sagði Íslendinga þurf að vita sannleikann um efnahagshrunið sem fyrst svo að sátt náist í samfélagið.
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 23:29
Skatturinn vill sinn hlut af pókertekjum
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 23:05
Fjör á jólaballi
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 21:55
Kaffi vinnur ekki gegn ölvun
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 21:28
Þau ákváðu ráðherraorlofið
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 21:24
Styrmir fletti ofan af klúðri Davíðs
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 21:10
Furðuljósið sem skók Noreg var eldflaug Rússa - myndband
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 20:00
Sjómaður mátti ekki veiða fyrir fátæka
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 19:49
Dýrir ráðherrabílar
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 19:33
Í tugthús fyrir undanskot
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 17:10
Jóhannes í Bónus fundar með rektor: Næstu skref gegn Hannesi verða tekin
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 15:28
Ók á strætisvagn
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 15:27
Dularfull ljós á himnum í Norður-Noregi
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 15:27
Landsliðsmaður kærður fyrir nauðgun
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 15:13
Brotist inn, hnuplað og rænt á höfuðborgarsvæðinu
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 14:59
Okrað á eldriborgurum
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 14:34
Förðunarfræðingur þarf að fela húðflúr nýnasista fyrir dómi
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 14:00
Þóttist vera móðir sín til að taka út peninga
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 13:28
Reyndi að skera ófætt barn úr heimilislausri konu
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 13:24
Bjarni: Stýrði og átti í BNT en segir Vafning ekki koma sér við
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 13:09








