Hestar ofar heimsfrægð. Unnur Birna neitaði BBC um leiðsögu um landið. Enda fyrirvarinn stuttur og hestarnir hennar líf og yndi. Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson
Forsvarsmenn breska ríkissjónvarpsins, BBC, heilluðust af frammistöðu Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur í svissneskum sjónvarpsþætti sem tekinn var upp í sumar hér á landi og sýndur á dögunum. Svo mikið í raun að þeir vildu fá hana til liðs við sig og endurtaka leikinn fyrir breskan almenning.
Unnur neitaði enda hafði hún gert önnur áform; með hestunum sínum. Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði Séð og Heyrt.
„Ég var búin að lofa mér austur fyrir fjall og gat því ekki hitt þá,“ segir Unnur Birna um símtalið sem hún fékk frá BBC á föstudaginn í síðustu viku. Fyrirvarinn of skammur og Unnur fór að sinna hestunum.
Nánar má lesa um ævintýri Unnar Birnu í Séð og Heyrt á næsta sölustað




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum
Beckham með Harry prins á djamminu
Radcliffe fúll út í Óskarinn
Var fullur á meðan hann lék Harry Potter