Tiger Woods rífur þögnina – forðast lögguna
Tiger Woods rífur þögnina eftir tvo daga af kjaftasögum um tildrög slyssins.
Tiger Woods segist vera aumur eftir slysið sem hann lenti í á föstudagsmorgun og harmar þær ljótu lygasögur sem spunnist hafi í kringum atvikið þegar hann klessti lúxusjeppa sínum á tré fyrir utan heimili sitt.
Tiger tjáir sig í yfirlýsingu sem sett var inn á heimasíðu hans nú í kvöld. Annan daginn í röð hefur hann hins vegar neitað að hitta lögregluna sem vill yfirheyra hann vegna málsins.
Lögreglan hefur birt neyðarlínusímatalið þar sem nágranni Tigers tilkynnir um slysið.
Tiger segir í yfirlýsingu sinni að slysið sé algjörlega honum að kenna, það sé neyðarlegt fyrir sig og fjölskyldu hans.
„Þetta er einkamál og þannig vill ég halda því. Þó ég skilji að fólk sé forvitið þá afsakar það ekki þá fjölmörgu ósönnu, óstaðfestu og illgjörnu orðróma sem nú ganga um mig og fjölskyldu mína. Þessi umræða er óábyrg.
Eina manneskjan sem ber ábyrgð á þessu slysi er ég. Eiginkona mín, Elin, sýndi af sér fádæma hugrekki þegar hún sá að ég var slasaður og í vanda. Hún var fyrsta manneskjan til að koma mér til hjálpar. Allar fullyrðingar annars eðlis eru algjörlega ósannar,“ segir Tiger Woods í yfirlýsingunni.
Hann segir atvikið hafa verið erfitt fyrir hann og eiginkonu sína, sem og fjölskyldu hans.
„Ég er þakklátur fyrir allan þann stuðning og heillaóskir sem ég hef fengið. En ég yrði þakklátur fyrir ef fólk gæti skilið að ég og fjölskylda mín þurfum að fá að eiga okkar mál fyrir okkur sjálf sama hversu ágengt sumt fólk getur verið,“ segir Tiger að lokum.
Fimmtudagur 25. febrúar 2010 kl 21:26
Tiger læsir klónum í PETA
Föstudagur 19. febrúar 2010 kl 17:00
Auðmjúkur Tiger Woods sagði sorrí: „Ég hélt framhjá“
Föstudagur 5. febrúar 2010 kl 11:35
Elin heimsækir Tiger á meðferðarheimilið
Þriðjudagur 29. desember 2009 kl 23:06
Woods í lýtaaðgerð eftir kylfuárás eiginkonunnar
Mánudagur 21. desember 2009 kl 13:09
Lauslætið falið fyrir forsíðuviðtal
Sunnudagur 20. desember 2009 kl 22:30
Mamma Tigers: Sár og reið út í son sinn
Laugardagur 19. desember 2009 kl 22:30
Tiger læðist út á næturna til að spila golf
Föstudagur 18. desember 2009 kl 22:25
Mamma Tigers vonsvikin
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 16:20
Segir Woods vera barnsföður sinn
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 13:02
Tiger horfir á teiknimyndir allan daginn
Fimmtudagur 17. desember 2009 kl 09:52
Woods og Nordegren að skilja
Miðvikudagur 16. desember 2009 kl 10:52
Tiger Woods: Eiginkonan mynduð án giftingarhrings
Föstudagur 11. desember 2009 kl 07:45
Konan fyrirgefur kannski en auglýsendur ekki
Fimmtudagur 10. desember 2009 kl 11:25
Elin ætlar að standa við bakið á Tiger
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 12:43
Gatorade segir upp samningi við Tiger
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 09:27
Sænska bomban sem Woods er að halda framhjá - myndir
Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 09:23
„10 hlutir sem Obama gæti lært af Tiger“
Þriðjudagur 8. desember 2009 kl 14:00
Tengdamóðir Tiger Woods flutt á sjúkrahús?
Þriðjudagur 8. desember 2009 kl 12:26
Tiger Woods kærulaus í rúminu
Þriðjudagur 8. desember 2009 kl 00:30








