ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

Svíi hreinsaður af ásökunum um að hafa myrt eiginkonu sína

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:11 › 29. nóvember 2009

Sænskur karlmaður hefur verið hreinsaður af ásökunum um að hafa myrt eiginkonu sína eftir að lögregla beindi sjónum sínum að öðrum hugsanlegum morðingja. Telur sænska lögreglan að eiginkonan hafi verið látist eftir að elgur réðst á hana. Ingemar Westlund, 68 ára, fann lík eiginkonu sinnar Agnetu Westlund,63, við vatnsbakka rétt utan við þorpið Loftahammer í Svíþjóð í september í fyrra.

Agneta hafði verið á gangi með hundi þeirra hjóna og hóf Ingemar leit að henni er hún skilaði sér ekki heim. Ingemar var handtekinn og sætti tíu daga gæsluvarðhalds vegna dauðdaga eiginkonu hans. Rannsókn málsins hefur nú verið hætt eftir að rannsóknarlögreglumenn fundu munnvatn og hár af elg á fötum Agnetu. Nafn Ingemars var því hreinsað af ásökunum um morðið og sagði hann martröðinni vera loksins lokið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.