Hosmany Ramos, sem situr í gæsluvarðhaldi í Hegningarhúsinu þessa dagana eftir að hafa flúið úr fangelsi í heimalandinu, segir að sér líði vel hér á landi. Hann er meira að segja farinn að geta sagt nokkur orð á okkar erfiða máli.
„Ísland er land sköpunar. Hér hafa Sturluson og Laxness og margir aðrir skrifað og málað mikil og stór verk. Íslendingar eru líka glaðir þrátt fyrir ástandið og mjög vingjarnlegir. Ég leik mér stundum að því að skoða blöðin og reyni að segja orðin. Ég get stundum skilið fyrirsagnirnar,“ segir hann og hlær. „Ég kunni norsku og það hefur hjálpað.“
Hosmany veit margt um land og þjóð og hefur margt gott um þjóðina að segja. „Íslendingar ættu að vera stoltari af því að eiga svona stórkostlegt land. Fyrir rithöfund er gott að vera hérna. Allt svo hreint og fagurt. Náttúrulegar auðlindir eru líka margar og um að gera að nýta þær.“
Viðtal við Hosmany Ramos er að finna í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision