ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Snarræði ökumanna kom í veg fyrir stórslys í Ártúnsbrekku

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:27 › 29. nóvember 2009

Litlu mátti muna að illa færi er ökumaður á leið um Ártúnsbrekku missti stjórn á bifreið sinni í hálkunni. Bifreiðin fór á all nokkrum hraða yfir umferðareyju sem skilur að umferð í austur og vestur og endaði á þeirri akrein sem var fjærst umferðareyjunni.

Bifreiðin hringsnerist á akbrautinni og hefði ekki verið fyrir snarræði ökumanna sem komu úr gagnstæðri átt hefði geta farið illa. Bifreiðin stöðvaðist fáeina metra fyrir framan fremstu bifreiðarnar sem komu keyrandi á móti henni.

Þá missti ökumaður fólksbifreiðar stjórn á bifreið sinni á Hringbraut og ók í gegnum girðingu við brautina. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir nokkuð um að bifreiðareigendur séu ekki búnir að láta bifreiðar sínar á vetrardekk.

Hvetur lögregla fólk til að vera ekki umferðinni á illa útbúnum bílum í hálkunni sem nú er á höfuðborgarsvæðinu. Þó er búið að salta allar helstu stofnbrautir á höfuðborgarsvæðinu en búast má þó við einhverri hálku á þeim.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.