Ljósin tendruð á Óslóartrénu klukkan fjögur í dag

Sunnudagur 29. nóvember 2009 kl 11:13

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Aðventuhátíð á Austurvelli í Reykjavík hefst klukkan fjögur í dag þar sem ljósin á Óslóartrénu verða tendruð. Athöfnin hefst með því að Dómkórinn syngur nokkur lög undir stjórn Marteins Hunger Friðrikssonar. Á eftir söngnum flyturMargit F. Tveiten, norski sendiherrann, stutt ávarp. Þá tekur borgarstórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, við jólatré sem er gjöf Oslóarborgar til Reykvíkinga. Það er Aud Kvalbein, varaborgarstjóri Oslóarborgar sem afhendir tréð, en það var höggvið 16. nóvember og sent til Íslands. Norsk-íslenska stúlkan, Hrafnhildur Sif Ingólfsdóttir, 8 ára, tendrar svo jólaljósin á trénu.

Tréð verður að venju fagurskreytt ljósum en að auki mun Ketkrókur, jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2009 prýða tréð. Ketkrókur er fjórði óróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélagsins en fyrri óróar félagsins hafa prýtt tréð síðustu ár. Vöruhönnuðurinn Hrafnkell Birgisson og rithöfundurinn Gerður Kristný lögðu Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra lið í ár við hönnun jólaóróans, Ketkróks. Hrafnkell hannaði óróann en Gerður Kristný orti kvæði sem fylgir óróanum. Gerður Kristný mun frumflytja þetta kvæði á Austurvelli og mun Hrafnkell á sama tíma krækja hangilæri upp úr potti og skera með óróanum.

Þá koma Bangsi litli úr Dýrunum í Hálsaskógi og Ljónið úr Galdrakarlinum í Oz í heimsókn og fá viðstadda til að hugsa um hvað það er sem skiptir máli.

Að lokum koma þrír hressir jólasveinar sem hafa laumast til byggða og ætla að heilsa upp á krakkana á Austurvelli ef mamma þeirra verður ekki búinn að ná þeim.

Dagskránni lýkur um 16:45

Gerður G. Bjarklind er kynnir og dagskráin er öll túlkuð á táknmál.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 23:29

Skatturinn vill sinn hlut af pókertekjum

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 23:05

Fjör á jólaballi

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 21:55

Kaffi vinnur ekki gegn ölvun

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 21:28

Þau ákváðu ráðherraorlofið

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 21:24

Styrmir fletti ofan af klúðri Davíðs

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 21:10

Furðuljósið sem skók Noreg var eldflaug Rússa - myndband

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 20:00

Sjómaður mátti ekki veiða fyrir fátæka

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 19:49

Dýrir ráðherrabílar

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 19:33

Í tugthús fyrir undanskot

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 17:10

Jóhannes í Bónus fundar með rektor: Næstu skref gegn Hannesi verða tekin

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 15:28

Ók á strætisvagn

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 15:27

Dularfull ljós á himnum í Norður-Noregi

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 15:27

Landsliðsmaður kærður fyrir nauðgun

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 15:13

Brotist inn, hnuplað og rænt á höfuðborgarsvæðinu

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 14:59

Okrað á eldriborgurum

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 14:34

Förðunarfræðingur þarf að fela húðflúr nýnasista fyrir dómi

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 14:00

Þóttist vera móðir sín til að taka út peninga

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 13:28

Reyndi að skera ófætt barn úr heimilislausri konu

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 13:24

Bjarni: Stýrði og átti í BNT en segir Vafning ekki koma sér við

Miðvikudagur 9. desember 2009 kl 13:09

Hagskælingar safna sparifötum og bókum fyrir fátæka