ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.5° 5m/s SSW

Líkfundur í Miklagljúfri

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:39 › 29. nóvember 2009
Lík ferðamanns fannst 60 metra ofan í suðurbrún Miklagljúfurs í gærdag.

Lík ferðamanns fannst 60 metra ofan í suðurbrún Miklagljúfurs í gærdag.

Umsjónarmenn bandaríska þjóðgarðarins Miklagljúfurs í Bandaríkjunum fundu í gær lík karlmanns sem gestir höfðu veitt athygli við suðurbrún gljúfursins. Lík mannsins fannst um 60 metra ofan í gljúfrinu.

Þjóðgarðsverðir létu sig síga niður í átt að líki mannsins og var það flutt af vettvangi í þyrlu.

Talsmaður þjóðgarðsins segir að maðurinn hafi verið að heimsækja gljúfrið ásamt fjölskyldu sinni, þar á meðal syni og tengdadóttur.

Málið verður í framhaldinu rannsakað til að komast að dánarorsök.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.