ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Kviknaði í jólatrjánum hjá Wal-Mart

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:29 › 29. nóvember 2009
Wal-Mart. Eldur kom upp í jólatréssölu verslunarinnar í Westbury.

Wal-Mart. Eldur kom upp í jólatréssölu verslunarinnar í Westbury.

Það er eitt að kveikja á jólatrénu fyrir jólin en annað þegar kviknar í jólatrénu. En það er einmitt það sem gerðist á jólatréssölu bandaríska verslunarrisans Wal-Mart í Westbury í New York í gær.

Eldur kom upp í jólatrjám fyrir utan verslunina en fjölmenni var að versla inn fyrir jólin þegar atvikið átti sér stað. Verslunin var rýmd vegna eldsvoðans en engan mun hafa sakað í uppákomunni. Rannsókn stendur yfir á orsökum eldsins.

Wal-Mart-versluninni var lokað það sem eftir lifði dags en reiknað var með að hún opnaði aftur í dag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.