„Markmið okkar er að gefa fleiri börnum tækifæri á að njóta sumar- og helgardvalar í Reykjadal,“ segir Berglind Sigurgeirsdóttir, markaðsstjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, sem nú fyrir jólin selur Kærleikskúluna í sjöunda sinn.
Á hverju ári efnir Styrktarfélagið til samstarfs við nýjan listamann um hönnun Kærleikskúlunnar, en allur ágóði af sölu hennar rennur óskiptur til fatlaðra barna og starfsins í Reykjadal. Í ár er það listamaðurinn Hreinn Friðfinnsson sem skreytir kúluna en hann er margverðlaunaður listamaður. Kærleikskúlan er munnblásin og gerð í takmörkuðu upplagi og er hver kúla einstök. Kúlunni er síðan pakkað af starfsmönnum á vinnustofunni Ás, sem er verndaður vinnustaður. Líkt og síðustu ár verður kúlan seld í takmörkuðu upplagi frá 5. til 19. desember.
Í Reykjadal dvelja fötluð börn og ungmenni í sumarbúðum auk þess sem boðið er upp á helgardvöl á veturna. Berglind segir sölu Kærleikskúlunnar skipta miklu fyrir starfið í sumarbúðunum. „Starfið í Reykjadal er virkilega mikilvægt, bæði fyrir foreldra og börnin sem hlakka til að komast þangað til að njóta ævintýra í samveru við jafnaldra og eignast vini,“ segir Berglind.
Starfsemin í Reykjadal er hins vegar kostnaðarsöm og hefur um 50 milljónum króna verið varið í framkvæmdir þar síðustu ár. Meðal annars hafa verið unnar endurbætur á sundlauginni og margt fleira. Unnið er eftir því markmiði að láta engar hindranir stöðva sig. „Í Reykjadal er reynt að gera það sama og allir krakkar gera. Ef þau vilja fara í fjallgöngu, þá gera þau það í sérstökum útivistarhjólastólum. Þau fá að upplifa ævintýri tilverunar eins og öll önnur börn. Börnin eru mjög ánægð og við finnum greinilega fyrir þakklætinu og gleðinni sem fylgir dvölinni,“ segir Berglind.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning