ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

Íslendingar kjósi um aðild að NATO

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
13:41 › 29. nóvember 2009
Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga.

Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga.

Íslendingar ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu samhliða sveitarstjórnarkosningum á næsta ári, verði farið eftir tillögu Samtaka hernaðarandstæðinga sem samþykkt var á Landsráðstefnu samtakanna sem lauk í gær. „Sextíu ár eru liðin frá inngöngu Íslands í NATO. Með aðildinni að hernaðarbandalaginu hafa Íslendingar skipað sér í sveit með helstu vopnaframleiðslulöndum heims – ríkjum sem staðið hafa í stríðsrekstri víða um lönd með hörmulegum afleiðingum fyrir fólk,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.

Samtökin segja Atlantshafsbandalagið hafa á síðustu misserum varpað grímunni og komi nú fram sem hreinræktað árásarbandalag. „Hernaðurinn í Afganistan er gleggsta dæmið um þetta, en með aðildinni að Atlantshafsbandalaginu er Ísland virkur þátttakandi í áralöngu stríði í einu fátækasta landi heims. Samtök hernaðarandstæðinga minna á að íslenska þjóðin hefur aldrei verið spurð með beinum hætti um afstöðu sína til aðildarinnar að NATO. Gera SHA það að tilllögu sinni að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um NATO-aðildina. Skorað er á Alþingi að halda slíka kosningu samhliða t.d. sveitarstjórnarkosningum, kosningu til stjórnlagaþings eða mögulegra kosninga um ESB-aðild,“ segir í tilkynningu frá samtökunum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.