ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Boðflennur Bandaríkjaforseta leita tilboða

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:45 › 29. nóvember 2009
Michaele tekur í spaðann á Obama.

Michaele tekur í spaðann á Obama.

Hjónin sem gerðust boðflennur í veislu Barack Obama í Hvíta Húsinu á dögunum eins og frægt er orðið leita nú tilboða frá sjónvarpsstöðvum í viðtal við sig. Þau ætla sér heldur betur að blóðmjólka sínar fimmtán mínútur af frægð og krefjast hundruð þúsunda dollara fyrir.

Einn yfirmaður sjónvarpsstöðvar staðfestir í samtali við Associated Press-fréttastofuna að umboðsmaður hjónanna hafi sett sig í samband við stöðina og hvatt hana til að gera tilboð í viðtalið.

CNN staðfesti að hjónin Michaele og Tareq Salahi hefði afboðað komu sína í spjallþátt Larry King á morgun.

Boðflennuskapur hjónanna þykir hinn vandræðalegasti fyrir öryggisgæslu Hvíta Hússins og bandarísku leyniþjónustuna C.I.A. þar sem hún hafði áður lýst því yfir að hjónin hefðu ekki komist nærri forsetanum. Síðar birtist ljósmynd af Michaele Salahi halda þéttingsfast um hægri hönd Obama á meðan eiginmaður hennar Tareq stendur við hlið þeirra skælbrosandi.

Er leyniþjónustan sökuð um vanrækslu á eftirliti með gestum veislunnar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.