ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Fíkniefnapar í haldi eftir húsleitir

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:53 › 29. nóvember 2009
Fimm húsleitir í tengslum við talsvert umfangsmikið fíkniefnasmyglmál í Reykjavík.

Fimm húsleitir í tengslum við talsvert umfangsmikið fíkniefnasmyglmál í Reykjavík.

Karlmaður á fimmtugsaldri og kona á þrítugsaldri voru handtekin grunuð um aðild að fíkniefnainnflutningi eftir húsleit í Grafarvogi fyrir helgi. Hálft kíló af kókaíni og 300 grömm af amfetamíni fundust við húsleitina.

Frá þessu var greint í kvöldfréttum Stöðvar 2. Þar kom fram að fólkið hafi verið úrskurðað í gæsluvarðhald fram á miðvikudag.

Fíkniefnalögreglan hefur farið í alls fimm húsleitir vegna málsins og fundust einhver fíkniefni í þeim.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.