ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Ramos í viðtali: Var hetja meðal fanganna í Brasilíu

08:15 › 28. nóvember 2009
Ramos vill ekki snúa aftur til Brasilíu

Ramos vill ekki snúa aftur til Brasilíu

Hosmany Ramos, lýtalæknir frá Brasilíu, situr inni í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg en hann var handtekinn við komu sína til landsins frá Noregi. Hann hefur setið inni í 27 ár í fangelsi í Brasilíu fyrir tvö morð en í helgarviðtali við DV segir hann frá því að í Brasilíu hafi hann verið hetja meðal fanganna.

„Ég var álitinn hetja innan veggja fangelsisins fyrir starf mitt á föngum. Lögreglumennirnir hikuðu ekki við að skjóta fanga og ég hlúði að þeim,“ segir Ramos sem var dæmdur í 53 ára fangelsi, meðal annars fyrir morðin tvö. Brasilíumenn vilja hann framseldan en sjálfur sækist hann eftir hæli hér á landi.

„Hér á Íslandi eru fangelsin góð og það er mikill munur á fangelsum á Íslandi og í Brasilíu. Prófaðu bara að gúggla „prison in Brazil“ og sjáðu með þínum eigin augum. Ísland er fyrirmyndarríki og það er enginn grimmur yfirmaður eins og í Brasilíu,“ segir Ramos í viðtalinu.

Viðtal við Hosmany Ramos má lesa í 104 síðna helgarblaði DV sem er komið út



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.