Sverrir og Björk ná engan veginn endum saman og eru núðlur og hrísgrjónagrautur oft í matinn á heimilinu. DV-mynd Bragi Þór Jósefsson
Hjónin Sverrir Jónsson og Björk Erlingsdóttir eru búin að missa allt sem þau hafa stritað fyrir í rúmlega tuttugu ára sambandi. Þau lentu í greiðsluerfiðleikum og segja bankann aldrei hafa hjálpað þeim. Þeim hafi verið hótað og þau þvinguð til að skrifa undir lán svo þau gætu selt húsið sitt. Erfiðleikarnir hafa haft alvarleg áhrif á hjónabandið og hefur Sverrir íhugað sjálfsvíg í svartnættinu.
„Við erum búin að missa allt. Það er sama hvert við höfum farið, við höfum alls staðar rekið okkur á vegg. Það er eins og við séum ekki gjaldgeng í þessu samfélagi. Ég upplifi mig í dag sem úrhrak,“ segir Sverrir Jónsson. Hann og kona hans, Björk Erlingsdóttir, keyptu fokhelt, tvö hundruð fermetra einbýlishús í Hafnarfirði fyrir rúmum fimm árum. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og í dag leigja þau íbúð í Grafarvogi, með tvö lán á bakinu sem eru í vanskilum. Þau segja farir sínar ekki sléttar af samskiptum við viðskiptabanka sinn, gamla Kaupþing, og sjá fram á að verða gjaldþrota fyrr en síðar. Greiðsluerfiðleikarnir hafa dregið þau langt niður í þunglyndi, svo langt að Sverrir hefur íhugað að svipta sig lífi.





Gat illa vitað að hann væri brotlegur
Hverja vilt þú skora á í biskupsembættið?
Thom Hartmann: „Íslendingar móðgast þegar þeim er boðið þjórfé“
Jóhanna og Steingrímur: „Betri tíð í vændum“
Landlæknir vill fjarlægja alla PIP brjóstapúða