Hosmany Ramos með öll sín tæki og tól til lýtalækninga en hann var gífurlega vinsæll sem slíkur í heimalandinu.
„Ég hef ekki játað eða viðurkennt neinn glæp. Það eru engar sannanir gegn mér - ekki neinar. Þess vegna ætla ég að fara með málið mitt fyrir Alþjóðadómstólinn,“ segir brasilíski lýtalæknirinn, Hosmany Ramos, sem dæmdur er fyrir tvö morð, í ítarlegu viðtali í helgarblaði DV.
Hosmany Ramos var árið 1981 dæmdur í 53 ára fangelsi í Brasilíu. Meðal annars fyrir tvö morð. Hann sat 27 ár á bak við lás og slá en eftir jólaleyfi í fyrra skilaði hann sér ekki til baka í fangelsið.
Hann hafði strokið og enginn vissi hvar hann var niðurkominn. Hann situr nú inni á Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg 9 eftir að hafa verið handtekinn við komu sína til Íslands frá Noregi.
Brasilísk yfirvöld vilja að hann verði framseldur. „Það er raunveruleg hætta á að ég verði drepinn í Brasilíu verði ég látinn snúa aftur,“ segir Ramos í viðtalinu.
VIP-líf í Brasilíu
„Í mörg ár lifði ég fáguðu VIP-lífi. Ég var frægur læknir, giftur frægri sjónvarpskonu og drakk í mig allt sem lífið hefur að bjóða. Ég hef komið á fjölmarga spennandi staði, séð spennandi hluti og hitt athyglisvert fólk,“ segir Ramos sem meðal annars djammaði á sínum tíma með Pelé og Mick Jagger
Lesið ítarlegt viðtal við Hosmany Ramos í 104 síðna helgarblaði DV sem er komið út





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna