ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE

Biskupi afhentur undirskriftalisti óánægðra sóknarbarna

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:27 › 27. nóvember 2009
Karli Sigurbjörnssyni biskupi var afhentur undirskriftalistinn í dag.

Karli Sigurbjörnssyni biskupi var afhentur undirskriftalistinn í dag.

Í dag var biskupi Íslands afhentur undirskriftarlisti frá hátt í helmingi atkvæðabærra sóknarbarna á Selfossi sem krefjast þess að nýr sóknarprestur verði kosinn í almennum prestskosningum.

Eins og fram hefur komið var samþykkt á Kirkjuþingi þann 12. nóvember síðastliðinn að sameina Hraungerðisprestakall og Selfossprestakall. Þeir sem mótmæla þessum gjörningi sætta sig illa við það að sóknarprestur Hraungerðisprestakalls taki sjálfkrafa við embætti sóknarprests við sameininguna.

Bendir hópurinn á stærðarmun söfnuðanna. 500 manns búa í Hraungerðisprestakalla en 6.600 á Selfossi.

Eins og DV hefur greint frá færði biskup Íslands séra Gunnar Björnsson úr embætti sóknarprests á Selfossi í embætti sérþjónustuprests við Biskupsstofu í október síðastliðnum. Í kjölfarið var ákveðið að sameina ofangreind prestaköll.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.