Jón Þorsteinn Jónsson, höfuð Nóatúnsfjölskyldunnar, er einn þeirra sem rannsóknin beinist að. Hann var stjórnarformaður Byrs þegar lánveitingin til Exeter var veitt til að kaupa meðal annars hans eigin bréf í Byr.
Fyrrverandi stjórnarmenn í Byr sparisjóði, Jón Þorsteinn Jónsson og Birgir Ómar Haraldsson, sæta rannsókn hjá sérstökum saksóknara vegna láns sem Byr veitti Tæknisetri Arkea/Exeter Holding til að kaupa stofnfjárbréf sem voru í eigu þeirra. Sjálfir höfðu þeir áður tekið lán hjá MP Banka til að kaupa bréfin og voru í persónulegum ábyrgðum. Með sölu bréfanna sluppu þeir við að eiga á hættu að verða gjaldþrota ef MP Banki gengi að þeim vegna skuldanna.
Embætti sérstaks saksóknara, Ólafs Haukssonar, gerði húsleit hjá sparisjóðnum Byr í Borgartúni og hjá MP Banka í Skipholti á þriðjudag í tengslum við rannsóknina á Exeter-málinu svokallaða. Áður hafði ekki komið fram að embættið væri einnig að rannsaka MP Banka í rannsókninni.
Yfirheyrslur í málinu hófust í gær og munu standa yfir næstu daga. Rannsóknin beinist meðal annars að fyrrverandi stjórnarmönnum í Byr, Jóni Þorsteini Jónssyni og Birgi Ómari Haraldssyni, og MP Banka.
Ljóst þykir að lánveitingarnar til Exeter þjónuðu bæði hagsmunum þeirra stjórnarmanna og stjórnenda Byrs sem skulduðu MP banka vegna stofnfjárbréfakaupanna. Lánveitingarnar þjónuðu einnig hagsmunum MP banka sem fékk greitt upp í skuldir Byrsfólksins með reiðufé í stað verðlítilla stofnfjárbréfa eftir að Exeter hafði keypt bréfin á yfirverði.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Björt framtíð með framsóknarblæ
Útvarpsstjóri segir ráðamenn ekki vilja að hann lesi fréttir
Gat ekki hróflað við Davíð
Nýr meirihluti myndaður í Kópavogi
Jón Gnarr setur Vetrarhátíð