ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: -0.7° 4m/s S

Skilanefnd Kaupþings afskrifaði 30 milljarða af skuldum 1998

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:38 › 25. nóvember 2009
30 milljarðar af skuldum 1998 hafa verið afskrifaðir.

30 milljarðar af skuldum 1998 hafa verið afskrifaðir.

Samkvæmt heimildum DV var lán 1998 ehf. verðmetið á um 17 milljarða króna af starfsmönnum skilanefndar Kaupþings þegar lánið fór yfir í Nýja Kaupþing sem í dag ber nafnið Arion banki. Rúmir 30 milljarðar af skuldum 1998 hafa því verið afskrifaðir. Þetta eru upplýsingar sem ekki hafa komið fram áður. Þær þýða að skilanefndin lækkaði skuldina þegar hún var flutt á milli bankanna.

„Þegar stóru lánin voru flutt frá gamla bankanum yfir í nýja bankann voru þau öll verðmetin. Það var í raun áætlun um hvað fengist fyrir þau. Lán fyrirtækja voru metin út frá sjóðsstreymi, undirliggjandi eignum, fasteignum ef því var að skipta, líkum á endurgreiðslu og EBIDTU margföldurum,“ segir heimildarmaður DV sem vill ekki láta nafns síns getið. Ef Arion banka tekst að fá meira en 17 milljarða króna fyrir lánið fer mismunurinn til skilanefndar Kaupþings.

1998 ehf., sem er móðurfélag Haga, var stofnað sumarið 2008 og fékk þá 30 milljarða króna lán í evrum hjá Kaupþingi samkvæmt lánabók Kaupþings sem birtist á vefsíðunni Wikileaks. Miðað við lækkun krónunnar stæði það lán í 48 milljörðum í dag. Því er ljóst að skilanefnd Kaupþings þarf væntanlega að afskrifa um 30 milljarða króna af skuldum 1998 ehf. en það tjón mun væntanlega leggjast á erlenda kröfuhafa. Á mánudag fékk Arion banki tilboð frá Jóhannesi Jónssyni kaupmanni, erlendum fjárfestum og stjórnendum Haga um fjárhagslega endurskipulagningu 1998 ehf. sem er móðurfélag Haga. Í yfirlýsingu frá Arion banka kom fram að samkvæmt tilboðinu komi ekki til neinna afskrifta á skuldum 1998 ehf.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.