ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Arion eins og íslenskur bútasaumur

12:00 › 25. nóvember 2009
Arion og íslenskur bútasaumur. Deila áttablaðarósinni bróðurlega í merki sínu.

Arion og íslenskur bútasaumur. Deila áttablaðarósinni bróðurlega í merki sínu.

Sitt sýnist hverjum um nýtt merki hins nýnefnda Arion banka, áður Nýi Kaupþing, og sama má segja um hina nýju nafngift. Merkið er byggt á ævafornu munstri áttablaðarósarinnar sem hefur víst verið algengt í íslenskum hannyrðum. Það fer ekki á milli mála þegar heimasíða Íslenska bútasaumsfélagsins er skoðuð, enda er merki félagsins og Arion sláandi lík.

Eins og fjallað var um í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær má einnig finna merki Arion banka í gólfi aðalútibús Landsbankans í Austurstræti.

En DV veitti því athygli að merki Íslenska bútasaumsfélagsins er einnig byggt á hinni vinsælu áttablaðarós, sem gert hefur góða hluti í íslenskum hannyrðum í gegnum árin. Var því kannski viðeigandi að félagið gerði merkið að sínu. Það var stofnað árið 2000 og eru félagar þess um 430 í dag.

Íslenska auglýsingastofan sá um að hanna merkið fyrir Arion banka. Eins og fram hefur komið, meðal annars á DV.is, vonuðust einhverjir eftir að bankinn tæki sér þjóðlegra nafn en merkið virðist að einhverju leiti bæta fyrir það sem ekki er íslenskt í því. Hvað er svo sem íslenskara en íslenskur bútasaumur?



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?