ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Lést í Noregi: lætur eftir sig konu og tvö börn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:39 › 24. nóvember 2009
Þessi mynd var tekin af Íslendingnum á bensínstöð stuttu áður en hann hringdi í sambýliskonu sína.

Þessi mynd var tekin af Íslendingnum á bensínstöð stuttu áður en hann hringdi í sambýliskonu sína.

Íslendingurinn sem fannst látinn í Noregi í gær lætur eftir sig norska eiginkonu og tvö börn.

Maðurinn fór í rútu í Osló til að fara heim til sín í Gol á sunnudagskvöld. Á miðri leið, um áttatíu til níutíu kílómetra frá Gol, var manninum hent út úr rútunni vegna ofurölvunar rétt eftir miðnætti. Hann hringdi til sambýliskonu sinnar klukkan 00.57 en gat ekki útskýrt fyrir henni hvar hann var. Klukkan hálf fjögur um nóttina hafði sambýliskonan ekki heyrt meira frá manninum og tilkynnt lögreglu það.

Lögreglan segir að rútubílstjórinn hafi ekki gert neitt rangt í málinu. Hann hafi hringt í lögregluna og fékk grænt ljós á að henda manninum út. Bílstjórinn sagði að maðurinn gæti vel séð um sig sjálfur þrátt fyrir ölvun.

Lögreglan og norski Rauði krossinn leituðu mannsins í gær en lík hans fannst í stöðuvatni.

Að því er fram kemur á Vísir.is í morgun hét maðurinn Karl Karlsson og var 48 ára gamall.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.