„Þetta er þeirra niðurstaða og þeir reka þarna sjálfstæð samtök. Ég hef komið mínum sjónarmiðum á framfæri og samtökin hafa beðist afsökunar,“ segir Katrín Jakobsdóttir, menningar- og menntamálaráðherra.
Eftir að upp komst að Pálmi Jónsson, fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, heimsótti strippstað í Sviss í opinberri heimsókn á vegum samtakanna óskaði Katrín eftir skýrum svörum um hvernig slíkt hafi getað gerst. Fyrir helgi fundaði stjórn KSÍ vegna málsins og þar var ákveðið að áminning til handa fjármálastjóranum væri nægjanleg. Stjórnin bað þjóðina afsökunar á atburðinum og því lofað að settar verði formlegar siðareglur samtakanna. Femínistafélag Íslands, Samtök um Kvennaathvarf og Stígamót fordæma niðurstöðuna.




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning