ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

World Class: Óbreytt á Nesinu

11:26 › 23. nóvember 2009
Búið er að færa rekstur World Class á Nesinu á milli kennitalna.

Búið er að færa rekstur World Class á Nesinu á milli kennitalna.

„Við höfum engar áhyggjur af þessu. Staða World Class hér hefur ekkert breyst þó að einhverjar kennitölur hafi breyst í rekstrinum. Það skiptir okkur engu máli og kemur okkur ekkert við,“ segir Haukur Geirmundsson, yfirmaður íþrótta- og æskulýðsmála Seltjarnarneskaupstaðar.

Líkamsræktarstöð World Class á Nesinu færist yfir á aðra kennitölu en samkvæmt upplýsingum frá bænum þá eru kennitölur beggja fyrirtækja, annars vegar hins greiðsluþrota fyrirtækis Þrek ehf. og hins vegar móðurfélags World Class, Lauga ehf., að finna í samstarfssamningi.

Haukur staðfestir að World Class hafi tilkynnt bæjarfélaginu kennitölubreytingu. „Okkar samskipti hafa ekki breyst enda erum við með samstarfssamning við bæði félögin. Í dag er staðan ósköp eðlileg en ef eitthvað annað kemur í ljós þá fáum við lögfræðing til að skoða það,“ segir Haukur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?