ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Vilja setja piparkökuþrjótana í gapastokk

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:48 › 23. nóvember 2009

Íbúar í Björgvin í Noregi eru æfir af reiði eftir að að skemmdarvargar rústuðu piparkökuhúsaþorpi sem reist er í miðbænum fyrir hver jól. Lögreglan í Björgvin hefur handtekið tvo karlmenn, tuttugu og eins árs og tuttugu og sex ára, grunaða um að hafa staðið að skemmdarverkinu. Borgarbúar í Björgvin voru ekki á eitt sáttir við þessa framkomu og vilja meðal annars að skemmdarvargarnir verði settir í gapastokk við aðalgötuna í Björgvin.

Mennirnir eru báðir sagðir búsettir í Björgvin og ekki hefur enn verið gefið út hvort þeir verði ákærðir fyrir skemmdarverkin. Íbúar í Björgvin skreyta piparkökuhús í öllum stærðum og gerðum sem svo eru til sýnis í miðborginni fram að jólum á hverju ári. Þorp með 650 piparkökuhúsum afhjúpað á laugardaginn í Björgvin. Húsin fengu þó ekki að standa lengi því óprúttnir skemmdarvargar skemmdu þau aðfaranótt sunnudags.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.