ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Tuttugu og einn myrtir í Filipseyjum í dag

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:36 › 23. nóvember 2009

Lík tuttugu einstaklinga hafa fundist í Filipseyjum í dag eftir að hópur aðskilnaðarsinna numu á brott fjörutíu manns. Morðin voru framin vegna framboðs Ismael Toto Mangudadatu til ríkisstjóra í Filipseyjum en meðal hinna látnu voru eiginkona hans og systir ásamt tólf blaðamönnum. Mangudadatu hafði borist hótanir um að verða myrtur ef hann afhenti gögn um framboð sitt sjálfur. Hann sendi því eiginkonu sína og systur til að afhenda gögnin í von um að þeim yrði hlíft.

Fjöldi manns höfðu safnast saman í kringum eiginkonu Mangudadatu og systur hans til að fylgjast með þeim afhenda gögn um framboð hans. Um hundrað árásarmenn umkringdu hópinn og numu fjörutíu manns á brott. Hermenn í Filipseyjum hafa fundið líkin á víð og dreif í dag og eru þrettán konur á meðal þeirra látnu og átta menn. Konunum var nauðgað og voru sum líkana af höfðuð.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.