ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Þessi Íslendingur er týndur í Noregi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@dv.is
10:43 › 23. nóvember 2009
Myndin af manninum er tekin á bensínstöð í Noresund klukkan 00.28 aðfaranótt sunnudags.

Myndin af manninum er tekin á bensínstöð í Noresund klukkan 00.28 aðfaranótt sunnudags.

Norska lögreglan hefur gert mynd opinbera af Íslendingnum sem hefur verið saknað í Noregi síðan aðfaranótt sunnudags. Með birtingur hennar biður lögreglan um hjálp við að finna manninn sem er 180 sentímetra hár, með sítt, dökkt hár og yfirvararskegg. Hann er í dökkum buxum og dökkri peysu með nokkrum litum við hálsmálið.

Maðurinn var í rútu frá Osló til Gol í Hallingdal í Noregi aðfaranótt sunnudags. Maðurinn fór úr rútunni í Noresund rétt eftir miðnætti, sirka áttatíu til níutíu kílómetrum frá áfangastaðnum í Hallingdal. Samkvæmt upplýsingum á norsku fréttasíðunni Dagbladet var maðurinn ölvaður og hefur vínflaska fundist sem talin er hafa verið í eign hans.

Nú telur lögreglan að hún hafi einnig fundið bakpoka Íslendingsins.

Leitin að manninum er umfangsmikil. Starfsfólk norska Rauða krossins tekur þátt og íhugað er nú hvort leitarþyrla eigi einnig að leita mannsins.

Lögreglan telur ólíklegt að keyrt hafi verið á manninn þó hann sé í dökkum fötum.

Á vefsíðu Dagbladet kemur fram að maðurinn tali norsku með íslenskum hreim.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.