ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Íslendingurinn er látinn

Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@dv.is
13:21 › 23. nóvember 2009
Hér sést Íslendingurinn á bensínstöð um hálftíma eftir að honum var hent út úr rútunni.

Hér sést Íslendingurinn á bensínstöð um hálftíma eftir að honum var hent út úr rútunni.

  • Mynd frá vettvangi af vefsíðu Dagbladet.

    Mynd frá vettvangi af vefsíðu Dagbladet.

Lögreglan hefur nú staðfest að líkið sem fannst í stöðuvatni fimm til sex hundruð metra norður af Noresund í Noregi í hádeginu í dag sé Íslendingurinn sem hefur verið týndur síðan aðfaranótt sunnudags. Honum var hent út úr rútu í Noresund rétt eftir miðnætti vegna ölvunar.

Samkvæmt frétt á norska fréttavefnum Dagbladet lét rútubílstjórinn lögregluna vita þegar hann henti manninum út. Hann fékk grænt ljós á að yfirgefa manninn þó hann væri ofurölvi. Lögreglan fór strax á staðinn þar sem honum var hent út en þá var maðurinn á bak og burt.

Leit hófst ekki fyrr en aðstandendur mannsins settu sig í samband við lögreglu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.