Strippstaður KSÍ: Niðurstaðan fordæmd

Fjármálastjóri KSÍ heimsótti strippstaðinn Rauðu mylluna í Sviss.

Fjármálastjóri KSÍ heimsótti strippstaðinn Rauðu mylluna í Sviss.

Mánudagur 23. nóvember 2009 kl 20:47

Höfundur: Trausti Hafsteinsson (trausti@dv.is)

Ákvörðun stjórnar Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, að leyfa fjármálastjóranum, Pálma Jónssýni, að halda vinnu sinni er fordæmd af Samtökum um Kvennaathvarf, Stígamótum og Feministafélagi Íslands. Samtökin segja óásættanlegt að ekkert hafi verið aðhafst eftir að upp komst að Pálmi heimsótti strippstað með kreditkort KSÍ í vasanum.

Atvikið átti sér stað fyrir fjórum árum síðan en þá kom Pálmi heim með ríflega þriggja milljón króna kreditkorta reikning á kort KSÍ. Rúm milljón hafði verið tekin útaf kortinu áður hann fór á strippstaðinn en afgangurinn var tekinn útaf kortinu á skömmum tíma inni á staðnum. Pálmi hefur ávallt haldið því fram að kortið hafi verið misnotað og borgaði sjálfur reikninginn.

Þegar upp komst ákváðu stjórnendur KSÍ að aðhafast ekkert þar sem sambandið yrði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni og ferill fjármálastjórans væri flekklaus. Þáverandi stjórn fjallaði ekki um málið. Það lýst forsvarsmönnum áðurnefndra samtaka illa á og krefjast þess að Íþróttasamband Íslands fjalli um málið. Þá hvetja samtökin til þess að opinbert fé verði látin renna til annarra hreyfing en KSÍ.

„Á sama tíma og fyrstu opinberu mansalsmálin á Íslandi vekja ugg í samfélaginu er upplýst að einn forsprakki íþróttahreyfingarinnar hafi skemmt sér næturlangt á klámbúllu erlendis í ferð á vegum KSÍ. Það er óásættanlegt að stjórnin víki ekki eftir að upp komst um vítavert framferði fjármálastjórans og máttleysisleg viðbrögð stjórnarinnar í kjölfarið," segir í tilkynningu frá samtökunum þremur.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Þriðjudagur 24. nóvember 2009 kl 23:56

Katrín fyrirgefur klámbúlluheimsókn

Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 19:47

KSÍ mun ekki aðhafast neitt – biður þjóðina afsökunar

Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 18:35

KSÍ: Kampavínsfundur fyrir luktum dyrum

Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 09:17

Strippstaður KSÍ: Fjórðungur stjórnar telur brottvikningu hugsanlega

Miðvikudagur 11. nóvember 2009 kl 12:09

Strippheimsókn ekki einsdæmi

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 19:48

Formaður KSÍ: „Hugsanlega sofnaði hann á staðnum“

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 13:32

Geiri býður KSÍ-menn velkomna á Goldfinger

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 11:30

Strippstaður KSÍ: Ráðherra krefst skýringa

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 10:56

Gillz: Allir alvöru karlmenn fara á strippbúllur

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 10:15

Strippstaður KSÍ: Eigandinn í Úkraínu að finna nýjar stelpur

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 09:00

Fjármálastjóri KSÍ: „Drekk ekki einu sinni kampavín“

Laugardagur 7. nóvember 2009 kl 15:49

Vilja að fjármálastjóri KSÍ víki

Föstudagur 6. nóvember 2009 kl 17:00

Þarna tapaði fjármálastjóri KSÍ milljónum

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 19:15

Fjármálastjóri KSÍ glataði milljónum á næturklúbbabrölti