Stórtækir þjófar gómaðir

Þjófarnir játuðu brot sín við yfirheyrslur.

Þjófarnir játuðu brot sín við yfirheyrslur.

Mánudagur 23. nóvember 2009 kl 16:21

Höfundur: Lilja Katrín Gunnarsdóttir (liljakatrin@dv.is)

Lögreglan á Akureyri hefur upplýst alls 28 innbrots- og þjófnaðarmál sem hafa átt sér stað á Akureyri undanfarnar vikur. Um var að ræða fjóra pilta á aldrinum sautján til nítján ára og nutu þeir aðstoðar þess fimmta í nokkrum tilvikum.

Piltarnir brutust meðal annars þrisvar sinnum inn í vélageymslu golfskálans að Jaðri á Akureyri, fjórum sinnum í húsnæði skátafélagsins að Hömrum, tvisvar sinnum inn í Fjölsmiðjuna, fimm sinnum inn í ísbíl í eigu Emmess, tíu sinnum fóru þeir inn í gám við skemmtistaðinn Amor og tóku þar talsvert magn af tómum drykkjarumbúðum sem þeir svo fengu greitt fyrir hjá Endurvinnslunni.

Auk þessa stálu þeir bensíni af þremur vélsleðum og einum dekkjagangi undan bifreið þar sem hún stóð í Glerárhverfi.

Í þessum málum stálu piltarnir meðal annars fjórhjóli, ýmsum verkfærum, um fjögur hundruð lítrum af eldsneyti, sælgæti, talsverðu magni af ís, smámynnt og ýmsum smáhlutum. Auk þessa unnu þeir talsverðar skemmdir, meðal annars með því að aka golfbíl og sláttutraktor út í tjörn og skurð, unnu skemmdir á kælikassa ísbílsins, brutu rúður, spenntu upp glugga og eyðilögðu peningaskáp.

Piltarnir játuðu brot sín við yfirheyrslur hjá lögreglunni en allir hafa þeir komið við sögu hjá lögreglu áður.


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:32

„Álfur“ hótaði að sprengja upp sveinka

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:00

Friðardúfa í vígahug

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:30

Tamílum veitt frelsi

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:20

Löggan stuðaði ódælan 10 ára dreng

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:50

Kirkju Tiger Woods lokað

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:40

„Osama er ekki hér“

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:31

Ríkasti glæpamaður Bretlands í 13 ára fangelsi

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:30

Hvatningarverðlaun ÖBÍ afhent

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:26

Hermann Hreiðars og félagar án launa í nóvember

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:25

Óttast um öryggi Polanski - færður um fangelsi

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 19:37

Setið um Ásdísi Rán í Búlgaríu

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:44

Ellefu ára blind stúlka vill verða söngleikjastjarna

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:30

Salt-félög Róberts skulda Glitni 20 milljarða

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00

Hvorki sjónvarp né útvarp á Kópaskeri

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00

Lalli Johns í 2 mánaða fangelsi fyrir innbrot

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:44

Femínistar vara við ábyrgum feðrum

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:42

Dómur þyngdur yfir 61 árs barnaníðingi

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:32

Þungir dómar yfir Papeyjarsmyglurum staðfestir

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:29

Stöð 2 að slátra RÚV - SkjárEinn fær útreið

Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 15:47

Sér eftir að hafa komið Tiger og eiginkonu hans saman