ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

Starfsmenn Arion gætu misst starfið nýti þeir greiðsluaðlögun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:42 › 23. nóvember 2009

Starfsfólk Arion banka, áður Nýja Kaupþings, sem nýtir sér greiðsluaðlögun vegna fjárhagserfiðleika verður flutt til í starfi eða fær uppsagnarbréf að því er fram kom í kvöldfréttum Stöðvar 2. Bankastjóri Arions banka, Finnur Sveinbjörnsson, sendi bréf til starfsmanna bankans í dag hvar þeir eru hvattir til að nýta sér, eftir því sem þörf krefur, skuldaúrræði sem bankinn bjóði upp. Er vísað til reglna bankans um fjárhagsstöðu starfsfólks frá árinu 2004 í bréfinu en stjórn bankans hefur ákveðið að til ársloka 2010 gildi eftirfarandi útfærsla á þeim.

„Tilflutningi í starfi eða uppsögn er ekki beitt í þeim tilvikum þegar starfsfólk nýtir sér greiðslujöfnun, skuldaaðlögun eða þaðan af vægari skuldaúrræði. Þurfi starfsmaður hinsvegar að nýta sér róttækari leiðir líkt og greiðsluaðlögun verður viðkomandi fluttir til í starfi eða sagt upp. Þá er áréttað að mjög strangar reglur gilda um helstu stjórnendur bankans en nýti þeir sér skulda- eða greiðsluaðlögun verður þeim vikið úr starfi,“ að því er fram kemur á fréttavef Vísis.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.