Jóhannes í Bónus: Sir Tom Hunter ekki meðal fjárfesta
Jóhannes Jónsson, oftast kenndur við Bónus, sagði í samtali við fréttastofu Ríkissjónvarpsins að það væri rangt að Sir Tom Hunter væri meðal þeirra bresku fjárfesta sem ætla að koma með nýtt hlutafé inn í 1998 ehf. móðurfélags Haga sem rekur meðal annars Bónus, 10-11 og Hagkaup.
Arion banki hefur móttekið tilboð frá Jóhannesi Jónssyni kaupmanni, erlendum fjárfestum og stjórnendum Haga um fjárhagslega endurskipulagningu 1998 ehf., móðurfélags Haga. Samkvæmt tilboðinu kemur ekki til neinna afskrifta skulda 1998 ehf.
Arion banki þarf að taka sér tíma til að meta tilboðið og bera saman við aðra kosti í stöðunni þar sem málið er flókið. Það er í samræmi við þá meginreglu bankans að leita lausna á skuldavanda fyrirtækja með eigendum og stjórnendum. Niðurstöðu varðandi tilboðið er að vænta um miðjan janúar.
Starfsfólk bankans áréttar að í þessu máli er unnið eftir verklagsreglum bankans sem eru í samræmi við lög um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins, sem nýverið voru samþykkt á Alþingi.
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:32
„Álfur“ hótaði að sprengja upp sveinka
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:00
Friðardúfa í vígahug
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:30
Tamílum veitt frelsi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:20
Löggan stuðaði ódælan 10 ára dreng
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:50
Kirkju Tiger Woods lokað
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:40
„Osama er ekki hér“
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:31
Ríkasti glæpamaður Bretlands í 13 ára fangelsi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:30
Hvatningarverðlaun ÖBÍ afhent
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:26
Hermann Hreiðars og félagar án launa í nóvember
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:25
Óttast um öryggi Polanski - færður um fangelsi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 19:37
Setið um Ásdísi Rán í Búlgaríu
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:44
Ellefu ára blind stúlka vill verða söngleikjastjarna
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:30
Salt-félög Róberts skulda Glitni 20 milljarða
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00
Hvorki sjónvarp né útvarp á Kópaskeri
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00
Lalli Johns í 2 mánaða fangelsi fyrir innbrot
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:44
Femínistar vara við ábyrgum feðrum
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:42
Dómur þyngdur yfir 61 árs barnaníðingi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:32
Þungir dómar yfir Papeyjarsmyglurum staðfestir
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:29
Stöð 2 að slátra RÚV - SkjárEinn fær útreið
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 15:47








