Fjölskyldu Íslendingsins sem fannst látinn í Noregi fyrir stundu hefur verið boðin áfallahjálp. Samkvæmt lögreglunni er öruggt að um Íslendinginn sé að ræða samkvæmt skilríkjum sem fundust á líkinu. Líkið verður nú krufið en nafn mannsins og fjölskylduhagir hans hefur ekki hefur verið gefið upp.
Maðurinn fór í rútu í Osló til að fara heim til sín í Gol á sunnudagskvöld. Á miðri leið, um áttatíu til níutíu kílómetra frá Gol, var manninum hent út úr rútunni vegna ofurölvunar rétt eftir miðnætti. Hann hringdi til sambýliskonu sinnar klukkan 00.57 en gat ekki útskýrt fyrir henni hvar hann var. Klukkan hálf fjögur um nóttina hafði sambýliskonan ekki heyrt meira frá manninum og tilkynnt lögreglu það.
Lögreglan segir, í samtali við Dagbladet, að rútubílstjórinn hafi ekki gert neitt rangt í málinu. Hann hafi hringt í lögregluna og fékk grænt ljós á að henda manninum út. Bílstjórinn sagði að maðurinn gæti vel séð um sig sjálfur þrátt fyrir ölvun.
Lögreglan og norski Rauði krossinn hafa leitað að manninum ásamt hjálp leitarhunda og þyrlu síðasta sólarhringinn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung
Breivik segist eiga skilið orðu