Hvergi hvikað frá fyrningarleið
Flokksstjórn Samfylkingarinnar hvetur stjórnvöld til að hvika hvergi frá mótaðri stefnu um innköllun veiðiheimilda í núverandi kvótakerfi með fyrningarleið að því er fram kemur í ályktun stjórnarinnar frá fundi hennar síðastliðinn laugardag. Segir í ályktuninni að leið Samfylkingarinnar með innköllun veiðiheimilda á 20 árum sé sáttaleið, sett fram í þeim tilgangi að koma til móts við þá sem fjárfest hafa í aflaheimildum.
„Hraðari innköllun eða uppstokkun á aflamarkskerfinu hlýtur jafnframt að koma til skoðunar í þeirri nefnd sem vinnur að endurskoðun fiskveiðistjórnunarkerfisins, sem og sú leið að allar viðbótarveiðiheimildir sem ákveðnar kunna að verða umfram þann heildarafla sem ákveðinn var 1. september s.l. verði boðnar upp á markaði þannig að allir útgerðarmenn hafi jafnan aðgang að veiðiheimildunum fyrir það verð sem fæst fyrir þær og tekjurnar renni í ríkissjóð,“ segir í ályktuninni.
Flokksstjórnin leggur áherslu á að nefnd sú sem vinnur að endurskoðun á fiskveiðikerfinu skili niðurstöðu í febrúarmánuði. Markmið jafnaðarmanna er að nýtt fiskveiðistjórnunarkerfi byggi á jöfnum rétti landsmanna til nýtingar fiskimiðanna, að eignarhald fiskveiðiauðlindarinnar liggi ótvírætt hjá þjóðinni og að réttlátur arður af veiðunum renni til fólksins í landinu.
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:32
„Álfur“ hótaði að sprengja upp sveinka
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 23:00
Friðardúfa í vígahug
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:30
Tamílum veitt frelsi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 22:20
Löggan stuðaði ódælan 10 ára dreng
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:50
Kirkju Tiger Woods lokað
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:40
„Osama er ekki hér“
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 21:31
Ríkasti glæpamaður Bretlands í 13 ára fangelsi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:30
Hvatningarverðlaun ÖBÍ afhent
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:26
Hermann Hreiðars og félagar án launa í nóvember
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 20:25
Óttast um öryggi Polanski - færður um fangelsi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 19:37
Setið um Ásdísi Rán í Búlgaríu
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:44
Ellefu ára blind stúlka vill verða söngleikjastjarna
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 18:30
Salt-félög Róberts skulda Glitni 20 milljarða
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00
Hvorki sjónvarp né útvarp á Kópaskeri
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 17:00
Lalli Johns í 2 mánaða fangelsi fyrir innbrot
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:44
Femínistar vara við ábyrgum feðrum
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:42
Dómur þyngdur yfir 61 árs barnaníðingi
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:32
Þungir dómar yfir Papeyjarsmyglurum staðfestir
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 16:29
Stöð 2 að slátra RÚV - SkjárEinn fær útreið
Fimmtudagur 3. desember 2009 kl 15:47







